30 Rock hefur slegið rækilega í gegn og hafa fyrstu tvær þáttaraðirnar sópað að sér verðlaunum.
Í ár hlaut hún 7 Emmy-verðlaun þar á meðal sem besta gamanþáttaröðin, Tina Fey sem besta aðalleikkonan og Alec Baldwin sem besti aðalleikarinn en þa...
Bráðskemmtilegur fjölskylduþáttur þar sem sýnd eru fyndin myndbrot sem venjulegar fjölskyldur hafa fest á filmu. Vinsælust eru alls kyns óhöpp, mistök og bráðfyndnar uppákomur með börnum, fullorðnum eða jafnvel húsdýrum.
Þeir Sverrir Bergmann og Ólafur Þór Jóelson snúa aftur á skjáinn og halda áfram að fjalla um allt það nýjasta í tækni, tölvum og tölvuleikjum. Áhuginn á tölvuleikjum hefur hefur aldrei verið meiri og tölvuleikir eru vinsælasta afþreyingarefni heim...
Þriðja þáttaröðin af Heroes hefur göngu sína á SkjáEinum í nóvember.
Þessi epíska saga hefur slegið í gegn um víða veröld og milljónir manna bíða spenntir eftir framhaldinu. Aðalsöguhetjurnar eru fólk með yfirnáttúrulega hæfileika og örlög þeirra...
Snjallasti læknirinn í sjónvarpi, dr. Gregory House, mætir aftur til leiks.
Þetta er fjórða þáttaröðin um þennan skapstirða sérvitring sem er snillingur í að leysa læknisfræðilegar ráðgátur. Hingað til hefur dr. House haft hóp aðstoðarfólks sér t...
Bráðskemmtileg, bresk þáttaröð þar sem lögulegar línur fá að njóta sín. Konur með alvörubrjóst, mjaðmir og læri hætta að hata líkama sinn og læra að elska lögulegu línurnar. Þær þurfa ekki að ganga í gegnum geðveikar æfingar, fara í hættulega megr...
Vinsælasta raunveruleikasería allra tíma, Survivor, snýr aftur og verður nú á dagskrá á þriðjudagskvöldum. Þetta er 17. þáttaröðin af Survivor og þættirnir njóta enn mikilla vinsælda hjá áhorfendum um víða veröld og að þessu sinni fer leikurinn fr...
Glæný og ögrandi þáttaröð sem vakið hefur mikla athygli í Bandaríkjunum. Þættirnir gerast árið 1976 þegar kúltur- og kynlífsbyltingin stóð sem hæst í Bandaríkjunum og diskótónlistin var að ryðja sér til rúms. Frjálsar ástir og makaskipti urðu vins...